Duld (The Shining)
24 09 2009The shining kom út árið 1980, og ein þekktasta mynd Stanley Kubrick. Hún er byggð á samnefndri bók eftir Stephen King sem kom út 3 árum áður. Þessi mynd kom Jack Nicholson á framfæri, enda fór hann á kostum í þessari mynd.
Óreiðumaðurinn Björgólfur
28 08 2009
Actavis er eitt stærsta lyfjafyrirtæki á heimsvísu á samheitalyfjamarkaðnum. Actavis varð undir í kjölfar fjárfestingu Samsonar Holding Group, fjárfestingarfélag Björgólfs Thor en hann fjárfesti í PharmaCo árið 2000. Sama ár keypti PharmaCo Balkanpharma í gegnum Samson og svo Delta árið 2001. Fyrirtækinu var svo breytt í Actavis árið 2004.
Árið 2008 var félagið Novator stofnað, sem einnig var í eigu Björgólfs. Skömmu seinna var dótturfélag Novators, Novator Pharma stofnað og tók það lán sem hljóðaði upp á 1000 milljarða íslenskra króna frá Deutche Bank. Var það stærsta einstaka lán sem bankinn hefur gefið út. Í framhaldinu keypti Novator Pharma Actavis í heild sinni fyrir fjármagnið, en var þá félagið í stærstu eigu Samsonar ehf sem einnig er félag Björgólfs.
Þannig að björgólfur tók 1000 milljarða króna lán til að kaupa actavis af sjálfum sér, og nú lýtur út fyrir að Novator Pharma verði gjaldþrota og verði skuldinn að einhverju leyti feld niður. Hvað verður um þessar 1000 milljarða?
Svo borga skattgreiðendur á einn eða annan hátt niðurfellingu þessara láns.
Talið er að um 12 milljarðar króna voru fluttar úr félögunum Samson ehf og Straum-Burðarás inn á um eitt hundrað reikninga á skattaskjóleyjunum m.a. Cayman Island.
Að þessi maður gangi um götur bæjarins er mér enn stór ráðgáta. Enron menn fengu 25 ára fangelsi fyrir svipuð fjármálamisferli og björgólfur átti í og fengu þeir einnig tugi milljarða króna sektir, einn reyndar dó og annar drap sig.
Nostalgia
10 08 2009Undanfarin ár hef ég fundið fyrir sterkri Nostalgíu á tónlist og tölvuleiki þá helst.

Maniac Mansion: Day of the Tentacle kom út 1993, ég spilaði hann 1997 og svo aftur 2008 og hef spilað hann öðru hvoru síðan. Í leiknum ferðast maður til nýlendutíma bandaríkjanna og í hryllilegan framtíðarheim þar sem “þreifarar” hafa lagt undir sig heiminn og halda mönnum sem gæludýrum. Leikurinn gengur útá að koma í veg fyrir að þreifurunum(Tentacle) takist það. Besti ævintýraleikur ever.

Monkey Island 1 kom út 1990, og ég man ekkert hvenar ég spilaði hann. Þegar ég prófaði hann aftur 2008 var tónlistin svo kunnuleg að það leyndi sér ekki. Topp leikur og ótrúlega fyndin spilun.

Jazz Jackrabbit kom út 1994 og ég spilaði hann frá 1994 til 2001 með pásum. Einfaldur leikur, ótrúlega skemmtilegur hef samt ekki lagt í að spila hann aftur.
- ef þú villt spila gömlu SCUMM leikina (mm,dott,mi1&2&3,dig,loom,sam&max,zacmakraken..) mæli ég með þessu snilldarforriti ScummVM
- ef þú átt symbian síma geturu fengið Scumm fyrir hann, og spilað leikina í símanum þínum Anotherguest



